








![]()
<
![]()
Halló

Gömul þjóðsaga segir frá barni sem var við það að fæðast.Barnið snýr sér að Guði og segir:
Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun,en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er?
Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér.Þessi engill mun sjá um þig.
En segðu mér,hérna á himnum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusamur?
Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig,hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og þannig verður þú hamingjusamur.
En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala?
Engillinn þinn segir falleg orð við þig,fallegustu orð sem þú hefur nokkurn tímann heyrt og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala.
En hvað geri ég ef ég vil tala við þig?
Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja.
Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn.Hver getur varið mig?
Engillinn þinn mun verja þig,þó svo það kosti hann lífið.
En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar?
Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín,en þó mun ég alltaf vera við hlið þér.
Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði:
Kæri Herra,þar sem ég er að fara segðu mér,hvað heitir engillinn minn?
Nafn hans skiptir ekki máli,þú kallar hann bara ,,mömmu"
............mínir englar eru reyndar tveir því hann pabbi minn er sko líka engill, heppin ég c",)
Bara í dag....
-ætla ég að brosa
til þín þegar augu okkar mætast
og hlæja þegar mig langar frekar að gráta...
-ætla ég að leyfa
þér að vakna mjúklega, vafinn inn í sængina
þína, og halda á þér í
fanginu þar til þú ert tilbúinn fyrir nýjan
dag...
-ætla ég að leyfa þér að velja hvaða
föt þú ferð í, brosa og hrósa þér
fyrir
"fullkomna" litasamsetningu...
-ætla ég að gleyma óhreina tauinu og fara frekar með
þér út á leikvöll...
-ætla ég að geyma óhreinu diskana í vaskinum
og hjálpa þér að leysa nýja púsluspilið
þitt...
-ætla ég að slökkva á símanum og tölvunni
og fara með þér út að blása sápukúlur...
-ælta ég að bjóða þér upp á
ís í innkaupaferðinni, í stað þess að
byrsta mig um leið
og þú ferð að suða um hann...
-ætla ég ekki að hafa áhyggjur af því
hvað þú ætlar að vera þegar þú
verður stór...
-ætla ég ekki að hafa bakþanka um allar ákvarðanir
sem ég tek í uppeldinu og fyrir
þína hönd...
-ætla ég að leyfa þér að baka með mér
bollur og ekki
hnoða þær allar aftur þegar þú sérð
ekki til...
Bara Í Kvöld....
-ætla ég að halda á þér í fanginu
og segja þér frá deginum þegar þú fæddist
og hvers
vegna mér þykir svona vænt um þig...
-ætla ég að leyfa þér að busla og skvetta
í baðinu og ekki verða reið út af vatninu
á gólfinu...
-ætla ég að leyfa þér að vaka lengi og skoða
stjörnurnar á himninum...
-ætla ég að kúra hjá þér eins
lengi og þú vilt, þó að ég missi þá
af
uppáhaldsþættinum mínum...
-ætla ég að dást að þér og vera þakklát
fyrir að eiga gersemi eins og þig.
Ég hugsa til mæðra sem hafa misst börn sín vegna
veikinda eða slysa og mæðra sem
dvelja á sjúkrahúsum með börnum sínum
og berjast fyrir lífi þeirra. Ég er svo heppin
að eiga þig og bið ekki um neitt... ...nema annan dag með
þér...
LJÓNIÐ
23. júlí
- 22. ágúst
Konungurinn í frumskóginum
er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi
við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við
erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill
láta taka eftir sér og láta dást að sér.
Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu.
Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu.
Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta
barn í heimi en ef það er óánægt öskrar
það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið
kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn
ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur.
Það þýðir ekki að segja ljóninu að
læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt
eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það
niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best.
Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að
virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði
og því er gott að fela því snemma ábyrgð.
Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra.
Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi
að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu
og ekki síst að hrósa því þegar það
hefur gert eitthvað jákvætt.
Maríanna
Nafn þetta er sett saman af
kvennöfnunum "María" sem merkir hin fagra og "Anna"
sem merkir náð.
Ósk
Nafn þetta er fengið af
nafnorðinu "ósk"
.
